Skírnarterta
Mitt allra mesta uppáhald er að gera skírnartertur! Ég fæ þá oftast að njóta mín vel með sprautupokann í allskonar dúlleríisvinnu en auk þess finnst mér þessar kökur vera persónulegustu kökurnar og því gaman að gera hverja og eina alveg einstaka. Þessa krúttlegu köku gerði ég um helgina :)

Barnið er gert úr marsipani og handmálað með matarlit. Það er gott á bragðið en það eru ekki margir sem vilja bíta í það :D

Það var hann Hilmir Blær ofurkrútt sem fékk fallega nafnið sitt um helgina :)
